Erum við búin á því?

Ég fabúleraði um það í vetur hve miklar erlendar skuldir okkar væru í raun. Reiknaði þetta út samkvæmt áætluðum vaxtagreiðslum fjármálaráðuneytisins. Samkvæmt meðfylgjandi frétt eru þessir meintu útreikningar mínir ekki fjarri lagi. Ef við gefum okkur að landsframleiðsla sé um 1.500 milljarðar og erlendar skuldir um 240% af landsframleiðslu þá gerir það um 3.600 milljarða. Samkvæmt AGS frá í nóvember eins og segir í fréttinni er landið búið á því fari hlutfallið upp undir 240% en í fréttinni er gefið í skyn að þær séu um 253%

Í dag hefur verið skýrt frá því í fréttum að norðurlöndin ætli að lána okkur 318 milljarða. Rússland og Póland um 500 milljónir dala til viðbótar öllum öðrum lánum. Ég get ekki að því gert að velta því fyrir mér hvernig í Guðs nafni ætlum við að endurgreiða þessi ósköp. En samkvæmt þessu þá erum við búin á því. Takk fyrir það.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Tek undir þetta Ari. Það virðast allir nema Jóhanna og Steingrímur vera búin að fatta að þetta gengur ekki upp.

Annars held ég að við ættum að fara að kæra einhverja fyrir landráð.

Ef þingið samþykkir Icesave þá er er komin nokkuð skýr forsenda til þess að kæra þá sem ábyrgir eru fyrir þessari skuldasöfnun fyrir landráð.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 7.7.2009 kl. 00:46

2 Smámynd: Arinbjörn Kúld

Nákvæmlega og þó fyrr hefði verið.

Arinbjörn Kúld, 7.7.2009 kl. 21:58

3 identicon

Þú fórst ansi nálægt þessu í vetur, í raun alveg rétt útkoma.

Í næstu viku verður Seðlabanki líklega með nýjar tölur.

Sveinn hinn Ungi (IP-tala skráð) 10.7.2009 kl. 21:40

4 Smámynd: Andri Geir Arinbjarnarson

Við munum aldrei borga þetta en það er örugglega búið að gera einhvers konar samkomulag um að við fáum skuldaaflausn ef við göngum inn í ESB.  Enda er það það eina skynsamlega í stöðunni að tengja Icesave við ESB. 

Andri Geir Arinbjarnarson, 11.7.2009 kl. 11:33

5 Smámynd: Arinbjörn Kúld

Ég hef það á tilfinningunni að Andri Geir fari ansi nálægt sannleikanum, að búið sé að semja um inngöngu gegn skuldaniðurfellingu um leið og við förum inn í ESB.

Stuttu síðar verður tekin upp Evra hér á landi í krafti neyðarinnar með blessaða krónuna.

Kveðja að norðan.

Arinbjörn Kúld, 11.7.2009 kl. 12:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband