Homo Islandicus (hinn þrætugjarni maður)

 Við íslendingar erum rétt um 317-320 þúsund hræður. Ég verð að viðurkenna það að mér finnst stórundarlegt að jafnfámenn þjóð skuli ekki ná að sameinast um stærstu málin sem brenna á þjóðinni og verja hagsmuni komandi kynslóða. Allt sem við höfum byggt upp á síðustu áratugum með blóði, svita og tárum er nú í stórhættu. Við vitum öll af hverju. Hér er hver höndin upp á móti hver annari. Persónulegt níð og skítkast veður uppi á bloggsíðum. Það er að verða stórhættulegt að tjá sig. Virðing fyrir náunganum, skoðunum hans og sýn á lífið og tilveruna er að engu orðin. Þegar svo er komið er fátt annað framundan en bræðravíg og blóðsúthellingar. Það er ekki það sem við viljum og þurfum.Það er engan greinarmun hægt orðið að gera á fjórflokknum. Allir þessir ismar sem þeir kenna sig við, kapitalismi, kommúnismi, socialismi og hvað þetta heitir allt saman er sama marki brent: drepur fólk og samfélög á endanum. Hagsmunir þeirra fara saman, smá sandkassaleikur á þingi til að blekkja fólk og halda völdum og allir glaðir.

Sá tími nálgast að fólk áttar sig á að samfélög eru fyrir fólk, byggð af fólki og rekið af fólki. Stofnandir og fyrirtæki mun átta sig á að þau eru fyrir fólk sem lifir í samfélaginu, tilvist þeirra byggð á fólki sem leggur þeim til aðstöðu, innviði og lífsrými. Samfélagið leggur til orku, fólk með menntun, reynslu og hæfileika til að reka fyrirtækin og stofnanir. Samfélagið leggur fyrirtækjum og stofnunum til öryggi í umhverfinu, löggæslu, menntun fólksins og velferð. Samfélagið með öðrum orðum tryggir fyrirtækjum og stofnunum allt sem þau þurfa til að lifa. Þegar gömlu "kapitalistarnir" átta sig á þessu fara þeir glaðir að leggja sinn sanngjarna skref til samfélagsins. Þegar gömlu "kommúnistarnir" átta sig á þessu fagna þeir tilvist fyrirtækja og rekstri þeirra. Þegar gömlu "socialistarnir" átta sig á að samfélög eru ein heild og ekkert okkar getur án hvers annars verið, hvorki fyrirtæki né fólk taka þeir höndum saman við "kapitalistana" og "kommúnistanana." Allir þessir ismar fara á endanum með samfélögin til andskotans og ömmu hans af einni ástæðu: þeir gleyma fólkinu!

Beri okkur ekki gæfa til að leggja af gamlar skærur og flokkadrætti þá verður engin uppbygging og framtíðarkynslóðir íslendinga munu hugsa okkur þegjandi þörfina. Svo einfalt er það. Að lokum bendi ég á þetta: "Óvinir" íslensku þjóðarinna eru: fjórflokkurinn í sinni núverandi mynd og fjármálakerfið/auðræðið í heild sinni. Við verðum að átta okkur á því að hagsmunir fjórflokksins og fjármálakerfisins fara saman að öllu leiti. Viðhald og endurvakning hins gamla kerfis sem keyrði okkur í þrot er þeirra forgangsmál. Það þarf ekkert að deila neitt um það eða hvað? Allt snýst þetta um völd og valddreifingu sem og að komast að kjötkötlunum öðru hverju. Fjórflokkurinn og fjármálaöflin hafa engan áhuga á því að koma hér á virkara lýðræði eða réttlátara samfélagi. Slíkt þýðir einungis minni völd og áhrif. Valdaklíkur flokkana eru hinar sömu í dag og voru ári fyrir hrun landsins. Valda mestu aðilar innan fjármálaaflana eru hinir sömu í dag og voru árin fyrir hrun landsins. Hvorugir þessara aðila hafa áhuga né hag af því að breyta stjórnskipan landsins eða minnka við sig völd, áhrif og auð.Þriðji "óvinurinn" er svo við sjálf eins og svo glögglega kemur í ljós við lestur ýmissa blogga. Það er miður en einkar gott fyrir fjórflokkin og fjármálaöflin. Flokkadrættirnir í samfélaginu eru ógnvænlegir og stækir. Fjórflokkurinn er að sýna sitt rétta andlit: sértrúarsöfnuðir þar sem allir aðrir en þeir sem þar eru og iðka sína trú eru glataðir og fara til helvítis! Nú í eftirleik skýrslunnar stóru sjáum við loks hið rétta andlit fjórflokksins og auðræðisins. Við þurfum því að slátra fjórflokknum og kerfi hans. Bylting er eina von almennings.

Góðar stundir J   


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Stefanía Jensdóttir

Sæll Arinbjörn,

Ég er farin að hallast að því að Íslendingum muni þrátt fyrir allt  bera gæfu til að breyta án blóðsúthellinga.  Þó svo að þrætugirnin og virðingaleysi sem viðgengst í orðræðu sumra bloggara og pólitíkusa sé óþolandi,  verður hún máttlausari og grynnri með hverjum degi sem lýður.

Með hverri nýrri áskorun hógværs fólks um nýtt lýðveldi að undangengnu stjórnlagaþingi, verður þessi von og ósk sífellt bjartari.

"Skýrslan" er stórkostlegur planki fyir örmagna þjóð að spyrna sér upp af, því ekki þýðir lengur fyrir neinn sem kemur fram í þeirri skýrslu að malda í móinn og bera við dylgjum, brigslum um öfund, róg og þaðan af verra.

Þess vegna leyfi ég mér að vera hóflega bjartsýn!

Jenný Stefanía Jensdóttir, 27.4.2010 kl. 00:31

2 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Heyr, heyr!!

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 27.4.2010 kl. 00:33

3 Smámynd: Arinbjörn Kúld

Sæl Jenný, það vona ég af öllu hjarta að þú hafir rétt fyrir þér. Þetta tekur tíma og stjórnmálamenn þráast við að skilja og skynja hvað siðferði er og þýðir. Vona að hið fræga skammtímaminni homo islandicus blómstri sem aldrei fyrr. En þeir átta sig ekki á að við getum alveg án þeirra verið. Skýrslan staðfesti illan grun manns og gott betur en það. Á henni verðum við að byggja. Ég get samt ekki annað en velt fyrir mér: hvernig? Ef við látum fjórflokkinn um endurreisnina á grunni skýrslunnar er alveg öruggt að hún verður ekki nýtt sem grunnur að nýju og betra samfélagi.

Og takk fyrir innlitið Jóna Kolbrún.

Kveðja að norðan.

Arinbjörn Kúld, 27.4.2010 kl. 01:33

4 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Góður penni takk fyrir mig

Sigurður Haraldsson, 27.4.2010 kl. 16:38

5 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Eitt sem ég vildi bæta við það er LÝÐRÆÐIÐ það gleymdist í flokksræðinu okkur ber skilda til að endurvekja það og eins og þú hefur bent á þá virðist ekki vera önnur leið en bylting til þess.

Sigurður Haraldsson, 27.4.2010 kl. 16:44

6 Smámynd: Ómar Geirsson

Ertu alveg viss????  (he, he, he,)

Takk Arinbjörn, góður að venju.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 27.4.2010 kl. 19:19

7 Smámynd: Arinbjörn Kúld

Takk fyrir innlitið Sigurður og það er í eðli flokka að kæfa það sem kallað er lýðræði og það gerist þegar klíkurnar ná völdum innan flokkana, nokkuð sem ávallt gerist í flokkakerfi.

Já Ómar ég er alveg viss. Ég veit bara ekki hvernig á að koma þessu af stað? :-)

Kveðja að norðan.

Arinbjörn Kúld, 27.4.2010 kl. 21:26

8 Smámynd: Ómar Geirsson

Fyrsta skrefið er að orða hugsanir fólks.

Það gerðir þú vel.  

Síðan er þetta dálítið undir öðrum komið.  Að fleirum en okkur langar að verða afar á þessu landi, landi sem við þurfum ekki að skammast okkur fyrir gagnvart barnabörnum okkar.

En allar byltingar sem heppnast, byrja á skynsamri orðræðu, jafnvel þó menn sjái það ekki fyrr en þeir skoða sviðið eftir á, þá eru orðin alltaf fyrst.

Baráttukveðjur norður héðan úr okkar austfirsku rigningu.  

Núna er það pollagallinn og stígvélin og langur göngutúr fyrir sál og líkama.

Kveðja, Ómar.

Ómar Geirsson, 28.4.2010 kl. 08:28

9 Smámynd: Arinbjörn Kúld

Já, orð eru til alls fyrst. Þess vegna höldum við áfram. Dropin holar steininn.

Vorkveðjur að norðan.

Arinbjörn Kúld, 28.4.2010 kl. 11:20

10 Smámynd: Óskar Arnórsson

Ég er meðmæltur byltingu. Að ENGIN núverandi pólitíkus fá að stjórna neinu lengur. Ráða einn mann frá útlöndum, vanan forstjóra frá stóru fyritæki og leggja Alþingi niður. Lýðræði er hvort eð er ekki lengur við lýði svo það tapar engin neinu. Svo er hægt að setja á stofn nýtt Alþingi þegar þjóðfélagið hefur náð þroska skilning fyrir þannig stýrikerfi...

Óskar Arnórsson, 28.4.2010 kl. 19:20

11 Smámynd: Friðrik Hansen Guðmundsson

Góður pistill

Friðrik Hansen Guðmundsson, 29.4.2010 kl. 00:19

12 Smámynd: Arinbjörn Kúld

Góður punktur Óskar. Væri ekki galið að fela vönum manni stjórnina þar til við höfum náð einhverjum þroska.

Takk fyirr innlitið og hrósið Friðrik.

Kveðja að norðan.

Arinbjörn Kúld, 29.4.2010 kl. 19:35

13 Smámynd: Óskar Arnórsson

Það var einn amerísku forstjóri fyrir alþjóðafyrirtæki sem bauðst til að stjórna öllu landinu og taka allar ákvarðanir sem væru landinu fyrir bestu. Eins og óheppnu fyrirtæki sem þarf að komast á lappirnar. Hann ætlaði sér 20 mínutur á dag 5 daga vikunar. Allt ókeypis því hann sagðist stórna landinu í kaffitímanum sínum og það er yfirdrifin nógur tími...

Óskar Arnórsson, 29.4.2010 kl. 20:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband